04.02.1955
Sameinað þing: 32. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (3323)

Þingfrestun og setning þings að nýju

Forsrh. (Ólafur Thors):

Má ég aðeins, herra forseti, fyrir hönd þingmanna leyfa mér að þakka herra forsetanum fyrir góðar óskir. Ég veit, að ég segi það fyrir hönd allra þingmanna, að við óskum honum gleðilegs árs, þökkum honum gömlu árin og biðjum honum allrar blessunar.