16.12.1954
Sameinað þing: 29. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í B-deild Alþingistíðinda. (354)

1. mál, fjárlög 1955

Forseti (JörB):

Þá hefur enginn kvatt sér hljóðs, og er umr. lokið. — Í sambandi við lok umræðunnar vil ég geta þess, að samkomulag hefur orðið milli stjórnarinnar og hennar flokka og andstöðuflokka stjórnarinnar um, að svokallaðar eldhúsumræður falli niður við meðferð fjárlaga, en fyrirhugað er, og um það mun einnig samkomulag, að almennar stjórnmálaumræður fari fram, þegar þingið kemur saman eftir áramótin, einhvern tíma þegar hentugt þykir, að slíkar umræður fari fram, og verður vitaskuld samkomulag um það atriði.