17.12.1954
Sameinað þing: 30. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í B-deild Alþingistíðinda. (359)

1. mál, fjárlög 1955

Hermann Jónsson:

Herra forseti. Í trausti þess, að ríkisstj. ráðstafi ekki fé þessu án þess, að Alþingi taki nánari ákvarðanir um málið, segi ég já. (Gripið fram í.) Ég er með henni í trausti þess, að ríkisstj. ráðstafi því ekki nema leggja nánar fyrir Alþ., hvernig ráðstafa skuli fénu.