17.12.1954
Neðri deild: 37. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (398)

95. mál, almannatryggingar

Pétur Ottesen:

Af því að hæstv. ráðh. leggur svo mikla áherzlu á, að þessi að mínum dómi mjög svo skýra brtt. muni valda einhverjum straumhvörfum í gangi málsins, þá get ég lýst því hér yfir, að ég mun að þessu sinni taka till. aftur, svo að afgreiðsla málsins þurfi ekki að stranda á því.