04.11.1954
Neðri deild: 12. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

38. mál, hlutatryggingasjóður bátaútvegsins

Frsm. (Pétur Ottesen):

Í tilefni af þessari fyrirspurn skal ég aðeins taka það fram nú, að það er gert ráð fyrir því í sambandi við þessa lántöku, að þessi ráðstöfun verði ekki þess valdandi, að fiskveiðideildin geti ekki staðið við sínar skuldbindingar. Viðvíkjandi öðrum atriðum, sem hv. þm. spurði um varðandi vextina, þá skal því verða svarað við 3. umr. þessa máls.