26.04.1955
Neðri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (833)
190. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð til að mæla fyrir þeirri brtt., sem ég hef lagt fram við þetta frv. á þskj. 640. Þetta frv. er sama eðlis og það, sem hér var á dagskránni næst á undan. Það miðar fyrst og fremst að því að hækka vaxtakjör hjá þeim sjóði, sem hér er um að ræða, byggingarsjóði sveitanna. Ég tel miklu eðlilegra að mæta þeim vanda, sem sjóðurinn kann að þurfa að glíma við á næstu árum með því að þurfa að borga hærri vexti sjálfur en vaxtatekjur hans geta orðið, með því, að greitt verði af hálfu ríkisins örlítið hærra fast framlag til sjóðsins og vaxtamismunurinn þannig greiddur niður. Nú greiðir ríkissjóður til þessa sjóðs á ári hverju 2 millj. og 500 þús. kr. Ég legg til, að ríkissjóður þess í stað greiði eftirleiðis 3 millj. kr., eða hækki sitt framlag um 500 þús. kr. Ég vona líka, að bv. alþm. geti fallizt á, að það sé ekki eftir því að sjá, þó að ríkissjóður greiði 1/2 millj. kr. meira á ári til þessa sjóðs en verið hefur, ef með því yrði hægt að koma í veg fyrir þá vaxtahækkun, sem annars er stefnt að með frv.