28.10.1955
Neðri deild: 12. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)

57. mál, sala jarða í opinberri eigu

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Ég get látið mér nægja að vísa til þeirrar grg., er fylgir þessu frv., um efni þess og tilgang og nauðsyn, að málið verði samþykkt hér á þinginu. Skjöl þau eða álit, er vitnað er til, eru í mínum fórum, ef hv. nefnd vildi líta á þau, áður en hún afgreiðir það.

Ég vil leyfa mér að óska, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. landbn.