23.01.1956
Neðri deild: 48. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)

118. mál, ný orkuver og orkuveitur

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Ég sé, að hv. fjhn. hefur lagt til í brtt. sínum á þskj. 249, að 2. gr. orðist svo, að þar sé heimilað að leggja aðalorkuveitu frá Laxárvirkjuninni um Norður-Þingeyjarsýslu. Ég þakka n. fyrir þessa till. og vil þá jafnframt lýsa yfir því, að ég tek aftur brtt. mína á þskj. 171.