03.02.1956
Efri deild: 61. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1055 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)

118. mál, ný orkuver og orkuveitur

Frsm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. N. hefur athugað þessar brtt. að nýju og tekur aftur brtt. á þskj. 333, fyrri brtt. við 2. gr., en mælir hins vegar eins og áður með brtt. á sama þskj. við 5. gr. Enn fremur er n. sammála um að mæla með brtt. á þskj. 334 við 5. gr. Frekar hef ég svo ekki um þetta mál að segja.