11.11.1955
Efri deild: 16. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (1116)

81. mál, skipun prestakalla

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil þakka n. bæði fyrir það, að hún hefur sameinað þessi tvö frv., sem ég taldi rétt og sjálfsagt, og eins fyrir það, að hún hefur tekið til greina þær athugasemdir, sem ég var að gera við frv., sem nú liggur fyrir, viðvíkjandi bæði ferðakostnaði og húsaleigu þessa umferðarprests, sem hugsað er að setja eftir lögunum. Ég tel það hvort tveggja til stórra bóta og vil láta í ljós þakklæti til nefndarinnar.