17.02.1956
Efri deild: 71. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)
143. mál, eftirlit með skipum
Fram. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Þetta mál er upphaflega borið fram í hv. Nd., og má segja, að það sé sízt að ófyrirsynju fram borið. Það heitir svo í grg. eða hét svo, að það væri fram borið af hálfu atvmrn., sem er skyldast að láta þessi mál til sín taka, og er vonandi, að samþykkt þess, sem fer nú fram á Alþingi, megi verða til þess, að breyting verði á umhirðu í bátum, bæði hvað vistarverur snertir og geymslupláss eða lestirnar fyrir fiskinn.
Það hefur orðið sú öra þróun á fiskibátum síðasta tuginn og síðustu tugina raunar, að vistarverur skipa hafa miklu meiri þýðingu fyrir daglegt líf skipverja en þær hafa áður haft, vegna þess að víða er það, að menn eiga sitt annað heimili svo að segja í skipunum á vertíðum, og er þess vegna mjög mikils vert, að þær séu þokkalega útbúnar, og þá ekki síður, að umgengni sé góð.
Ég veit nú ekki, hvort skipaeftirlitið er þannig framkvæmt, að það hafi meira en eins árs eftirlit með skipunum að öllu og einu leyti, — ég veit, að það hefur ekki daglegt eftirlit, — en það væri mikil þörf, að þessu væri kippt í lag og að skipaeftirlitið yrði meira raunhæft og athugalt en það hefur verið fram að þessu.
Hreinlæti í vistarverum, forðageymslum og lestum er brýn nauðsyn af mörgum ástæðum. Það er t.d. víða tekið upp að hafa olíukyndingu í stað kolakyndingar. Færist það mjög í vöxt, að olíukynding sé höfð á skipunum, en henni fylgir miklu meiri eldhætta en t.d. kolakynding, eins og reynslan hefur raunar leitt í ljós. Að því er lestirnar snertir, hef ég heyrt því haldið fram, að sá þurrafúi, sem talað er um að hafi komið hér og vissulega hefur fest rætur í byrðingum margra báta, muni ef til vill stafa af slæmri loftræstingu í skipunum. Ég fullyrði ekkert í þessu efni, en ég bendi aðeins á, að þessi möguleiki hefur verið talinn vera fyrir hendi og það af gagnkunnugum mönnum, sem hafa daglega umgengni í fiskibátum og skipum, sem m.a. hafa fengið þennan svokallaða þurrafúa í sig, en hann hefur kostað útgerðarmenn stórfé, og hið opinbera hefur orðið að hlaupa undir bagga til þess að hjálpa mönnum í þessu efni til að lagfæra bátana aftur.
Það er þess vegna góðra gjalda vert, að hæstv. atvmrn. kemur með þetta frv. núna, og sjálfsagt að samþykkja það, enda leggur hv. sjútvn. þessarar deildar til á þskj. 294, að það sé samþykkt óbreytt. En ég vil benda hæstv. stjórn á það, að hið svokallaða skipaeftirlit þarf sjálfsagt sjálft mikilla endurbóta við og verksvið þess þarf að ákveða með reglugerð nánar en nú er og svo náið, að trúverðugir skipaeftirlitsmenn með fullkomnu valdi hafi eftirlit með skipunum, ekki einasta þann daginn, sem lögskráð er á skipin, heldur líka á vertiðinni, hafi leyfi til þess að skoða umgengnina og hafi leyfi til þess að gera athugasemdir við aðbúnaðinn og vald til þess að láta framfylgja sínum till.
Þessi orð vildi ég leyfa mér að láta fylgja samþykktartill. hv. sjútvn. um þetta mál, sem er í rann og veru miklu mikilsverðara og mikilvægara en manni mundi kannske virðast við fljótt yfirlit.