15.03.1956
Efri deild: 85. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Forseti (GíslJ):

Út af ummælum hv. þm. S-Þ. (KK), að þessi mál hafi verið rædd hér mjög mikið í þinginu, vil ég taka það fram, að hér í þessari hv. d. hafa umr. um málið ekki staðið óeðlilega langan tíma. Hv. frsm. minni hl. hefur borið hér fram mjög margar brtt., sem eðlilegt er að hann hafi þurft nokkurn tíma til þess að skýra, og hafði ég enga ástæðu til þess að áminna hann fyrir að hafa tekið til þess of langan tíma. Hins vegar vildi ég gjarnan geta lokið þessum umr., ef hægt væri, án þess að það sé nokkur fyrirskipun.