10.12.1955
Neðri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil leyfa mér að þakka hv. fjhn. d. fyrir það, hversu skörulega hún hefur unnið að þessu máli, en það er alls ekki hægt að segja, að hér sé um einfalt mál að ræða.

Ég vil lýsa fylgi mínu við þær brtt., sem hv. n. hefur flutt, og fara fram á, að hv. dm. vildu verða vel við þeim óskum n. að greiða fyrir málinu, koma vinnu sinni þannig fyrir og tillöguflutningi, að málið geti fengið greiðan gang í gegnum hv. Alþ. og hin nýju launal. öðlazt gildi nú um áramótin.