10.12.1955
Neðri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

86. mál, laun starfsmanna ríkisins

Forseti (SB):

Ég vil aðeins geta þess, áður en umr. er haldið lengra áfram, að ætlunin er að ljúka 2. umr. um málið nú í dag, og verður ekki gert fundarhlé. Ég vænti, að hv. þm. vilji heldur ljúka umr. fyrr með því að hafa ekkert fundarhlé heldur en að sitja á fundi á laugardegi langt fram á kvöld. Í trausti þess, að hv. þm. fallist á þetta, verður umr. haldið áfram.