20.02.1956
Neðri deild: 73. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (1545)
62. mál, áburðarverksmiðja
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Frv., sem hér liggur fyrir, er um breyt. á l. frá 1949 um áburðarverksmiðju. Áburðarverksmiðjan er hlutafélagsfyrirtæki. Flm. þessa frv. hefur hald
ið því fram, að svo gæti farið, að verksmiðjan yrði gróðafyrirtæki einstakra hluthafa. Ég fæ ekki séð, að svo geti orðið, að óbreyttum lögum. Ríkið á 3/5 hlutafjárins og hefur hlutfallslegan yfirráðarétt í öllum málum félagsins. Samkv. því kýs Alþ. þrjá af fimm stjórnendum fyrirtækisins. Enn má benda á, að ákveðið er í lögunum, að ekki megi greiða meiri arð af hlutafénu en 6% á ári, og þess má geta, að enn sem komið er hafa hluthafar enga vexti eða arð fengið af hlutafé sínu í áburðarverksmiðjunni.
Með frv. þessu er stefnt að því að leggja niður hlutafélagið Áburðarverksmiðjan h/f. Jafnvel þó að menn vildu á það fallast, tel ég ákaflega hæpið, að ekki sé meira sagt, að slíkt verði gert með þeim hætti, sem lagt er til í frv.
Ekki varð samkomulag í fjhn. um frv. Tveir nm. vilja láta samþykkja það, en meiri hl. getur ekki á það fallizt. Það er þó ekki till. meiri hl., að frv. verði fellt, en hins vegar leggur hann til, eins og fram kemur í nál. á þskj. 377, að málinu verði vísað til ríkisstj. Víst getur verið ástæða til að taka lögin um áburðarverksmiðjuna til yfirskoðunar, þ. á m. ákvæðin um hlutafélagið, og því eðlilegt, að málinu sé vísað til ríkisstj. til athugunar.