06.01.1956
Neðri deild: 39. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 261 í C-deild Alþingistíðinda. (1680)
85. mál, mannanöfn
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera þá athugasemd, að hæstv. menntmrh. sneri auðvitað vísvitandi og viljandi út úr þeim orðum mínum áðan, að ég mundi telja það aðalskoðun mína, að rétt væri, að allir menn legðu niður ættarnöfn frá ákveðnum tíma, t.d. 1. jan. næsta árs, þó að ég segðist mundu flytja um það till. og hafa hana aðaltill., beinlínis af því, að slík till. mundi ávallt verða borin upp á undan hinni till., sem fæli það í sér, að ættarnöfn skyldu vera óheimil í næstu kynslóð, vegna þess að sú till. gengur lengra. Ég tók alveg skýrt fram, að sjálfur teldi ég það vera skynsamlegri lausn, og ég hef líka ástæðu til þess að halda, að það sé skoðun fleiri manna. M.a. var það skoðun minni hl. í mannanafnanefndinni, að sú leið skyldi farin, að ættarnöfn skyldu bönnuð í næstu kynslóð og hverfa með næstu kynslóð.
Mér vitanlega hefur enginn á undan hæstv. dómsmrh. borið fram þá till., að ættarnöfn skyldu bönnuð frá ákveðnum tíma, t.d. frá næstu áramótum. Ég hef ekki séð þá till. á prenti. Hitt er annað mál, eins og ég sagði áðan, að svo mikið legg ég upp úr því, að ættarnöfn hverfi, að ég tel rétt að fylgja þeirri till., þó að ég telji hana að ýmsu leyti mjög gallaða. Þetta vona ég að sé svo augljóst mál, að það ætti ekki frekari skýringa að þurfa við.