28.03.1956
Neðri deild: 99. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í C-deild Alþingistíðinda. (1779)

191. mál, jafnvægi í byggð landsins

Skúli Guðmundsson:

Ég tel mikla þörf á því að stækka friðunarsvæðin. Hins vegar hefur d. og fjhn. hennar haft svo skamman tíma til að athuga þetta frv., að ég tel mig ekki geta dæmt um það, hvort þetta sé hæfilegt, sem þarna eru gerðar till. um, og tel því, að það mál eigi að taka upp sérstaklega, og segi þess vegna nei við brtt.