12.10.1955
Neðri deild: 3. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
12. mál, verðlagsuppbót á laun opinberra starfsmanna
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Því var lýst yfir á síðasta Alþ., að ríkisstj. mundi beita sér fyrir því að leggja fyrir það þing, sem nú er að hefjast, frv. til nýrra launalaga. Þetta verður gert, og geri ég mér vonir um, að þess verði ekki langt að bíða, að þetta frv. verði lagt fyrir hv. Alþ. Og það mun a. m. k. verða lagt fyrir svo snemma að það verði vandalaust fyrir hv. Alþ. að afgreiða málið fyrir áramót, en að sjálfsögðu var gert ráð fyrir því, að hin nýju launalög öðluðust gildi um næstu áramót. Nefndin, sem hefur starfað að þessu máli, hefur lokið störfum og skilað til ríkisstj. áliti, sem er í athugun hjá henni, áður en málið verður lagt hér fyrir.