28.03.1956
Efri deild: 104. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í C-deild Alþingistíðinda. (1929)

83. mál, félagsheimili

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég get alls ekki fallizt á þá uppástungu hæstv. forseta, að þessu máli verði vísað til fjhn. Málið var alls ekki í fjhn. í hv. Nd., og það er venja, að mál séu í sömu nefndum í báðum deildum. En ef á að fara að vísa málinu til fjhn., vildi ég spyrjast fyrir, bæði hjá hv. d. og hæstv. forseta, hvaða tíma fjhn. á að hafa til þess að athuga þetta mál.