23.11.1955
Sameinað þing: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 4 í D-deild Alþingistíðinda. (2111)

55. mál, alþýðuskólar

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Við fyrri hluta umr. um þetta mál gerði ég grein fyrir þeirri till., sem hér liggur fyrir til umr. Sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það, sem ég sagði þá, og raunar ekki heldur að bæta þar við. Málinu var vísað til allshn. Alþ., og eins og álit þeirrar n. á þskj. 125 ber með sér, leggur hún einróma til, að Alþ. samþykki till. Allýtarleg grg. fylgir till. á þskj. 60, og um rökstuðning fyrir áliti sínu vísar n. til grg. Tel ég mig ekki þurfa fleira fram að taka, nema tilefni gefist til.