22.03.1956
Sameinað þing: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í D-deild Alþingistíðinda. (2287)

65. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum

Einar Olgeirsson:

Ég var hlynntur þessari till., eins og hún kom fram upphaflega og eins og meiri hl. n. mælti með að hún yrði samþykkt, enda stendur í till. n., að þeir leggi til, að hún sé samþykkt óbreytt. Nú hefur verið samþ. brtt. frá einum nm. við þessa till., sem ég álít gera hana verri. Engu að síður vil ég ekki taka afstöðu á móti henni og greiði þess vegna ekki atkvæði.