21.03.1956
Sameinað þing: 48. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í D-deild Alþingistíðinda. (2325)

39. mál, eyðing refa og minka

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér f. h. okkar flm. að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu hennar á málinu, og við erum því að sjálfsögðu samþykkir, að það verði afgreitt eins og hv. n. leggur til.

Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð, en það er von okkar, að samþykkt þessarar till. verði til þess, að ný sókn verði hafin gegn refa- og minkaplágunni í landinu.