22.03.1956
Sameinað þing: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2332)

39. mál, eyðing refa og minka

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það var upplýst í umr. í gær, að Búnaðarfélag Íslands væri að vinna að þessu máli og að um þetta gilda ákveðin lagafyrirmæli, sem þáltill. getur ekki breytt. Ég sé því ekki ástæðu til þess að samþ. þessa till. og segi því nei.