22.03.1956
Sameinað þing: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í D-deild Alþingistíðinda. (2333)

39. mál, eyðing refa og minka

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Vegna þess að ég hef orðið þess var við atkvgr., að sá misskilningur hefur komizt inn hjá þm., að n. hafi verið sammála um að taka aftur rökstuddu dagskrána, þá vil ég láta þess getið, að ég greiddi í n. atkv. gegn því að taka hana aftur, og ég segi nei við þessari till.