22.03.1956
Sameinað þing: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í D-deild Alþingistíðinda. (2337)

39. mál, eyðing refa og minka

Skúli Guðmundsson:

Ég vil sem einn af tillögumönnunum taka fram að gefnu tilefni, að till. ber ekki að skoða sem neitt vantraust á Búnaðarfélag Íslands, og ég fæ ekki séð, að með þessari till., þótt samþ. verði, sé á nokkurn hátt raskað því, sem lög mæla fyrir um starf Búnaðarfélagsins að þessum málum. Ég segi því já.