27.03.1956
Sameinað þing: 51. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í D-deild Alþingistíðinda. (2434)

195. mál, biskupsstóll í Skálholti

Gísli Guðmundsson:

Við hv. 2. þm. N-M. höfum fyrir tilmæli hv. flutningsmanna tekið aftur brtt. á þskj. 626, eins og lýst var hér áðan, en í trausti þess, að við undirbúning málsins verði fullt tillit tekið til þess efnis, sem felst í brtt., segi ég já.