18.01.1956
Efri deild: 40. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (246)

135. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það er nú auðséð, að hv. Alþingi mun ekki ljúka afgreiðslu fjárlaganna fyrir 20. jan., og því er óhjákvæmilegt að framlengja heimildina um bráðabirgðafjárgreiðslur, sem gefin var og náði til 20. þ. m. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að hv. þingmenn verði sammála um þetta og að hæstv. forseti greiði fyrir málinu á þann hátt, sem hann raunar þegar hefur lýst yfir að hann muni gera.