30.11.1955
Sameinað þing: 18. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í D-deild Alþingistíðinda. (2758)
101. mál, endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Það er aðeins upplýsing, herra forseti, vegna þess að það mátti skilja svo af þeim ummælum, sem hér féllu, að þessar till. hefðu verið af hálfu flokkanna, Sjálfstfl. og Framsfl. Ég hygg, að það hafi verið tekið fram af okkur sjálfstæðismönnunum í nefndinni, að þetta væru ekki beinar flokkstillögur, þótt flokknum væri kunnugt um þær, og Karl Kristjánsson lét bóka eftir sér orðrétt: „taldi till. vera sína persónulegu till., en Framsfl. hefði á flokksþingi gert samþykkt, þar sem hann lýsti sig fylgjandi sérstöku stjórnlagaþingi“, — þannig að það liggur fyrir, að sú var flokksafstaða Framsóknar. Sá sérstaki háttur, sem átti að vera á kosningu til þingsins að till. Karls Kristjánssonar, hygg ég hins vegar að hafi verið hans eigin hugmynd.