05.01.1956
Sameinað þing: 27. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (2872)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ekki fæ ég neitað því, að mér þótti lítið að græða á svörum hæstv. forsrh. og nokkur tregða á því að veita þau svör, sem veitt voru. Þó fékk ég þær upplýsingar, sem mér þykja í sjálfu sér betri en ekki, að togararnir mundu halda áfram veiðum, þ.e.a.s. þeir, sem ekki stöðvuðust vegna fjárhagsörðugleika. Hvað mikið upplýst er með þessu svari, get ég ekki fullyrt að svo stöddu.
Um vélbátaflotann fékk ég engar upplýsingar frá hæstv. ráðh. aðrar en þær, að hann gerði sér von um, að málinu yrði ráðið til lykta einn veg eður annan fyrir janúarlok, ætla ég, að ég hafi tekið rétt eftir.
Hæstv. ráðh. vísaði mér til Alþýðublaðsins til þess að fá þar upplýsingar um, hvernig ástatt væri hjá útgerðinni. Það er óþarfi að vera að vísa mér þangað. Ég les það, sem í því stendur. En að sjálfsögðu hefur hvorki Alþýðublaðið né ég haft neina aðstöðu til þess að vita, hvernig raunverulega er hagur vélbátaútgerðarinnar, skulum við segja, og reyndar útgerðarinnar allrar og þeirra fyrirtækja, sem við hana skipta, sem ekki skiptir minna máli, eins og hraðfrystihús, vinnslustöðvar og önnur slík fyrirtæki, sem við hana skipta. Mér hefur skilizt, að einmitt í skýrslu hagfræðinganefndarinnar væru upplýsingar um þessi atriði, sem að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa til þess að geta skapað sér rökstudda skoðun á málinu og metið, hverjar leiðir eru líklegastar til úrlausnar. Því verð ég að segja, að ég er alveg á öndverðri skoðun við hæstv. forsrh., þegar hann fullyrðir, að ríkisstj. beri engin skylda til að láta þingmönnum, sem eru í stjórnarandstöðu,í té hreinar hagfræðilegar upplýsingar og skýrslur. Ég hef aldrei farið fram á það, að ríkisstj. gerði grein fyrir því, hvaða tillögur hún mundi gera til lausnar á málinu, fyrr en hún væri viðbúin að leggja þær fyrir þingið, en upplýsingar, hreinar tölulegar, hagfræðilegar upplýsingar um ástand og hag útgerðarinnar og fyrirtækjanna, sem við hana skipta og á henni lifa, er tvímælalaus réttur þingmanna að fá jafnóðum og þær eru til, og það er brot á öllum venjulegum þingræðisreglum að leyna slíkum skýrslum, eftir að búið er að taka þær saman fyrir ríkisfé. — Ég endurtek það, sem ég sagði, ég skil það vei, að ráðh. vilji ekki leggja fram neinar tillögur, fyrr en þær eru fullgerðar, en þær upplýsingar, sem nefndin hefur safnað, og þær skýrslur, sem hún hefur gert, eiga þm. tvímælalausan rétt á að fá. Einnig eiga þm. rétt á að vita, hvort þessi nefnd er einhuga, ekki um sínar tillögur, heldur um matið á ástandinu, hvernig það er nú, og það væri æskilegt að fá um það upplýsingar hjá hæstv. ráðherra einnig.