11.11.1955
Sameinað þing: 2. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1406 í B-deild Alþingistíðinda. (2906)

Minning Jakobs Möllers

Forseti (JörB) :

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :

„Reykjavík, 11 okt. 1955.

Magnús Jónsson, f.h. þingflokks Sjálfstæðisflokksins, hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem Ingólfur Jónsson, 1. þm. Rang., er nú erlendis og mun ekki um skeið geta setið á Alþingi, er þess hér með óskað, að varamaður hans, Sigurjón Sigurðsson bóndi í Raftholti, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar. Til forseta sameinaðs Alþingis.“ — [Fundarhlé.]