16.12.1955
Neðri deild: 38. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (2966)

Þingfrestun og setning þings

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd., áður en þingi verður frestað, vil ég óska utanbæjarþingmönnum góðrar heimferðar og heimkomu. Öllum hv. þdm. óska ég svo gleðilegra jóla og nýárs, um leið og ég þakka þeim góða samvinnu á árinu. Vil ég láta þá ósk í ljós, að við megum allir heilir hittast á nýju ári.