17.12.1955
Sameinað þing: 26. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (2969)
Þingfrestun og setning þings
forseti (JörB) :
Þetta verður síðasti fundur Alþingis að þessu sinni. Ég vil þakka hv. þm. fyrir ágætt samstarf á þessu þingi. Ég vil óska þeim gleðilegra jóla og gleðilegs og farsæls komandi árs. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar ferðar heim og góðrar heimkomu. Ég vona, að við megum allir heilir hittast eftir áramótin eða næst er Alþ. kemur saman. Starfsfólki þingsins óska ég gleðilegra jóla og gleðilegs nýárs og þakka því unnin störf.