05.01.1956
Sameinað þing: 27. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1417 í B-deild Alþingistíðinda. (2975)

Þingfrestun og setning þings

Forseti (JörB):

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. góðar óskir hans til mín og hv. alþingismanna. Enn fremur vil ég óska hv. alþingismönnum góðs árs og þakka þeim fyrir liðið ár og býð þá velkomna til Alþingis til starfa áfram.