20.01.1956
Neðri deild: 47. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (298)

8. mál, rithöfundaréttur og prentréttur

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. það, sem hér er til umr., um breyt. á l. um rithöfundarétt og prentrétt, og leggur til, að það verði samþykkt óbreytt.

Frv. er stjórnarfrv., flutt í Ed., og var afgreitt þaðan án breytinga. Ég tel ekki ástæðu til að lýsa efni frv. hér, enda er nákvæm grein gerð fyrir því í athugasemdum við frv. Allshn. leggur til, að frv. verði samþykkt óbreytt.