15.12.1955
Neðri deild: 35. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (549)

103. mál, sauðfjársjúkdómar

Ásgeir Bjarnason:

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls flutti ég brtt., sem féll hér í þd. með jöfnum atkv. Sú atkvgr. sýndi m. a., að það var vilji hv. Alþingis að ganga nokkuð til móts við mig í þessum efnum. Þess vegna hef ég nokkuð breytt till. og legg hana hér fram í öðru formi. Það er farið fram á minna en áður var, og vænti ég þess, að hv. alþm. komi það til móts við mig, að þessi till. nái fram að ganga. Að öðru leyti get ég vísað til þess, sem ég áður sagði við 2. umr. þessa máls.