01.03.1956
Efri deild: 78. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 775 í B-deild Alþingistíðinda. (639)

172. mál, eignarskattsviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Undanfarin ár hefur eignarskattur verið innheimtur með 50% álagi, en þetta ákvæði hefur einungis gilt eitt ár í senn. Með þessu frv. er lagt til, að ákvæðið verði framlengt fyrir árið 1956.

Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta fleiri orð, en óska eftir því, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni umræðunni.