26.03.1956
Efri deild: 97. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í B-deild Alþingistíðinda. (771)

127. mál, félagslegt öryggi

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Frv. þetta á þskj. 230 er um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um félagslegt öryggi. Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og hefur verið hér til athugunar hjá heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. N. leggur einróma til, að frv. verði samþ. óbreytt.