04.04.1957
Neðri deild: 80. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)

10. mál, dýravernd

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta er komið aftur til þessarar hv. d. frá Ed. Í hv. Ed. hefur verið gerð breyting á einni gr. frv., og tel ég eðlilegt, áður en málið verður endanlega lögfest, að menntmn. þessarar d. gefist kostur á að athuga að nýju þá breytingu. Ég vil mælast til þess, að hæstv. forseti fresti afgreiðslu þessa máls nú á þessum fundi, en að menntmn. gefist tækifæri til að líta á málið, og mun það ekki þurfa að tefja fyrir afgreiðslu þess að neinu ráði, gæti jafnvel orðið tilbúið á næsta fundi. Umr. frestað.

Á 81. fundi í Nd., 5. apríl, var fram haldið einni umr. um frv.