11.04.1957
Neðri deild: 85. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)

133. mál, vísitala byggingarkostnaðar

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Þetta er stjórnarfrv., borið fram í Ed. og var afgreitt þar, að ég bygg, samhljóða. Það hefur legið fyrir heilbr.- og félmn. þessarar deildar, og varð samkomulag um það í nefndinni að mæla með frv. eins og það liggur fyrir. Ég sé ekki ástæðu til að fara að rekja efni frv. Það liggur mjög ljóst fyrir, bæði í frv. sjálfu og þeim athugasemdum, er því fylgja á þskj. 325.

Heilbr.- og félmn. leggur því til, að frv. verði afgr. óbreytt eins og það liggur fyrir.