02.05.1957
Neðri deild: 90. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1194)

206. mál, skattfrádráttur

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Eftir að hafa heyrt upp lesna hina skriflegu brtt., sem fyrir liggur, fæ ég ekki betur séð en að hún sé alveg samhljóða brtt. á þskj. 339, sem var flutt hér í d. af hv. 2. þm. Reykv., þegar málið var hér til meðferðar, en mun þá hafa verið felld, og skilst mér, að hún geti því tæplega komið undir atkv.