03.12.1956
Neðri deild: 25. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (124)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég er meðflm. með hv. 2. þm. Eyf. að tveimur málum á þskj. 20 og 34. Það er frv. til l. um breyt. á iðnlánasjóði, annað málið, og hitt er að efni til að afla þessum sjóði meiri tekna en verið hefur. Þessum málum var vísað, fyrra málinu 12. nóv. og síðara málinu 15. nóv., til hv. iðnn. Ég vildi nú gera fsp. um það og óska eftir því, af því að það hefur ekkert heyrzt af þessum málum, að hv. iðnn. tæki þessi mál til meðferðar og maður mætti vænta, af því að nú er verulega liðið á þing, að við færum að fá afgreiðslu á þessum málum frá nefndinni.