17.05.1957
Neðri deild: 99. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1264 í B-deild Alþingistíðinda. (1301)

126. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum

Frsm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Landbn. hefur athugað þetta frv. og þær breytingar, sem hafa verið gerðar á því í hv. Ed., en þessar breytingar eru ákvæði, sem skýra að nokkru leyti leigukjör þeirra, sem nýbýlin taka á leigu, og hins vegar er gerð breyting á ræktunarsjóðslögunum til samræmis við breytingu, sem gerð var hér í hv. Nd. við 2. umr. þessa máls. N. mælir með því, að þessar till. verði samþ.