29.01.1957
Neðri deild: 47. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (135)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Forseti (EOl):

Ég vil að gefnu tilefni beina þeim tilmælum til hv. nefnda deildarinnar, að þær sinni þeim störfum, sem þeim hafa verið falin, með því, að málum hefur verið vísað til þeirra. Það er ekki vansalaust, hve seint gengur að fá mál frá nefndum. Og ég vil eindregið mælast til þess, að hv. nefndir fari að vinna að því að skila álitum um þau mál, sem hjá þeim eru.