12.04.1957
Efri deild: 88. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1381)

160. mál, húsnæðismálastofnun

Gunnar Thoroddsen:

Ég vildi aðeins gera þá athugasemd, herra forseti, að ég tel þetta rangt upp borið. Hæstv. ráðh. bar fyrst fram till. um fjhn., hann hefur að vísu tekið hana aftur nú. Í ræðu minni áðan bar ég einnig fram till. um fjhn. Það er því fyrr fram komin sú till. heldur en um heilbr.- og félmn. Ég taldi, að það ætti að bera hana upp fyrst.