05.11.1956
Efri deild: 9. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

Athugasemdir um fundarhöld

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Þeir atburðir, sem nú hafa gerzt í umheiminum, hljóta að vekja djúpan harm allra frelsisunnandi manna. Ég leyfi mér í nafni Sjálfstfl. að mælast til þess, að Alþingi felli niður fundi í dag og votti með því ungversku þjóðinni einlæga samúð sína.