27.05.1957
Neðri deild: 109. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1495)

13. mál, innflutnings- og gjaldeyrismálfjárfestingarmála o. fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er komið hingað frá hv. Ed. Það er borið fram af hæstv. ríkisstj. til staðfestingar á brbl., sem út voru gefin 28. sept. næstliðið ár. Efni frv. er það, að stjórn innflutningsskrifstofunnar skuli skipuð fjórum mönnum, en áður voru aðeins tveir stjórnendur hennar. — Fjhn. hefur athugað frv., og samkvæmt nál. á þskj. 645 mælir n. með því, að frv. verði samþ., en tveir af hv. nefndarmönnum hafa þó undirritað álitið með fyrirvara.