27.05.1957
Efri deild: 110. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)

178. mál, Útvegsbanki Íslands

Forseti (BSt):

Út af því, sem hæstv. forsrh. sagði, vil ég taka það fram, að þetta er rétt. Hann sneri sér til formanna nefndanna og óskaði eftir, að þær ynnu saman að athugun þessa máls, og það gerðu þær á þrem fundum, þó að hv. 2. þm. Árn. af einhverjum ástæðum væri ekki nema á tveimur. Einn þessara funda stóð mjög lengi, og öll athugun málsins fór fram á þessum sameiginlega fundi, en að sjálfsögðu hafði fjhn. Nd. úrslitavald um það, hvaða till. voru bornar fram í Nd.