24.05.1957
Neðri deild: 106. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1712 í B-deild Alþingistíðinda. (1613)

179. mál, Framkvæmdabanki Íslands

Frsm. minni hl. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Í nál. minni hl. kemur það fram, að við teljum þetta frv. ástæðulaust og leggjum til, að það verði fellt, og skal ég ekki hafa um það fleiri orð, en vísa að öðru leyti til þeirra umræðna, sem fram hafa farið um bankamálin.