12.11.1956
Sameinað þing: 7. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (162)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Svo sem hæstv. forseti gat um, hefur kjörbréfanefnd þegar haldið fund af þessu tilefni, þar sem kunnugt var, af hverju fundurinn var boðaður, og kjörbréf Ásgeirs Sigurðssonar, sem er 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Rvík, var þar til athugunar. Var n. öll sammála um að leggja til, að kjörbréfið yrði tekið gilt, þ.e.a.s. einn þm., hv. 11. landsk. þm., Friðjón Þórðarson, var fjarstaddur, en allir hinir voru sammála um að leggja til, að bréfið yrði tekið gilt, og er það till. nefndarinnar.