07.02.1957
Sameinað þing: 26. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

Varamenn taka þingsæti

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Ég tel Alþingi ekki geta samþ. till. um að taka gilda kosningu ákveðins manns, án þess að kjörbréf hans liggi fyrir til afgreiðslu hér í þinginu, en er hins vegar þeirrar skoðunar, að Alþingi mundi hafa getað látið í ljós vilja sinn um rétt flokka almennt undir sams konar kringumstæðum og hér liggja fyrir, og segi nei um till.